Tónleikar í Dalbæ um verslunarmannahelgina

Tónleikar verða í Dalbæ laugardaginn 5. ágúst kl. 16 um verslunarmannahelgina.

Meðal þeirra sem fram koma eru Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Svanur Vilbergsson gítarleikari. Kraftgalli mun opna lagakistu sína og trúbadorinn Gísli Jens Guðmundsson mætir með gítarinn. 

Á vegum Snjáfjallaseturs eru í Dalbæ á Snæfjallaströnd sýningar um Drangajökul og horfna byggð í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, um tónskáldið Sigvalda Kaldalóns og um Spánverjavígin 1615.

Opið er alla daga 10-20.

DEILA