Súgfirðingur Norðurlandameistari í berboga

Maria Kozak vann gullið í einstaklingskeppni og varð Norðurlandameistari í berboga U18 kvenna á Norðurlandameistaramóti ungmenna sem haldið var í Larvik Noregi síðustu helgi (30 júní-2 júlí).

Maria vann úrslitaleikinn af miklu öryggi 6-2 gegn Stina Wermelin frá Svíþjóð. Annika Hansen frá Danmörku varð í þriðja sæti eftir 7-3 sigur á Roczo Bernadett frá Noregi í brons úrslitum.

María vann einnig silfur í liðakeppni á mótinu. Hún er Súgfirðingur sem keppir með SkotÍs á Ísafirði. Þetta er fyrsta landsliðsverkefnið sem Maria tekur þátt í og hún er að íhuga að fara á EM innandyra í U21 flokki. En það mót verður haldið í Króatíu í febrúar.

Bogfimisamband Íslands sendi 32 keppendur og náðu þeir góðum árangri. Fjórir urðu Norðurlandameistarar og íslensku keppendurnir settu fjö Norðurlandamet.

DEILA