Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, tók á fimmtudag á móti Guðrúnu Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra, og samstarfsfólki í nýju flugskýli Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvelli.
Guðrún kynnti sér fjölbreytta starfsemi Landhelgisgæslunnar og helstu verkefni stofnunarinnar. Í nýja flugskýlinu var þyrlukostur Landhelgisgæslunnar skoðaður.
Einnig heilsaði Guðrún upp á áhöfnina á TF-SIF sem var að undirbúa eftirlitsflug um hafsvæðið umhverfis landið.

Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, heilsaði upp á áhöfnina á TF-SIF.

Guðrún kynnti sér starfsemi Landhelgisgæslunnar.

Guðrún Hafsteinsdóttir skoðar nýtt flugskýli Landhelgisgæslunnar.

Guðrún Hafsteinsdóttir og Georg Lárusson.