Í þágu Landverndar

Elías Jónatansson, Orkubússtjóri.

Landvernd sendi Orkubúi Vestfjarða formlega beiðni 21. júlí sl. um að bregðast við meintum rangfærslum í grein umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í grein sem birtist í Morgunblaðinu 7. júlí.
Það er óvenjulegt að Orkubúið fái slíka beiðni. Orkubúinu er málið hins vegar skylt og því sjálfsagt að leysa úr smávægilegum misskilningi, sem snýst reyndar ekki um hversu mikið varaafl var framleitt með dísilolíu né um það
hversu stórt kolefnisspor þeirrar framleiðslu var, heldur um það hver á varaaflsstöðina sem um ræðir. Það er því upplýst hér á sama vettvangi að umrætt varaafl er í eigu Orkubús Vestfjarða.
Gagnvart kolefnissporinu og verndun loftslags er eignarhaldið á varaaflsstöðinni aukaatriði, en varmaorkuna sem um ræðir þarf að framleiða með dísilolíu vegna skorts á raforku. Það er óumdeilt.

50 MW í uppsettu varaafli

Orkunotkun á Vestfjörðum byggist að hálfu á orku sem flutt er eftir Vesturlínu inn á Vestfirði og er hæsti afltoppur í kerfinu um 46 MW. Ef línan verður straumlaus er brugðist við því með því að gangsetja varaaflsstöðvar. Annars
vegar er um að ræða dísilrafstöðvar í eigu Orkubúsins og Landsnets, samtals rúmlega 28 MW, en hins vegar er um að ræða dísilolíukatla í eigu Orkubúsins sem notaðir eru sem varaafl fyrir rafkynta katla fjarvarmaveitna, en þeir eru samtals um 20 MW í 6 veitum. Samtals er því til reiðu 50 MW dísilknúið varaafl á Vestfjörðum sem nægir til að mæta að fullu straumleysi eða aflskorti í raforkukerfinu – fjárfestingin er því tvöföld. Reikninginn greiða neytendur með hærri
gjaldskrá.
Á árinu 2022 notaði Orkubúið 2,1 milljón lítra af olíu til framleiðslu á varmaorku í samanburði við 200 þús. lítra árið á undan. Olíunotkunin var vegna skerðingar á afhendingu raforku frá Landsvirkjun fyrir rafkyntar hitaveitur Orkubúsins, en Landsvirkjun hefur sem seljandi heimild til skerðingar. Varaaflið sem brenndi olíunni er hins vegar í eigu Orkubúsins en ekki í eigu Landsnets. Óskynsamlegt væri að byggja upp varaaflið fyrir rafkyntu veiturnar með dísilknúnum rafstöðvum, því það mundi þýða mikla fjárfestingu í dísilvélum og þrefalt meiri olíunotkun við straumleysi þar sem
olía nýtist næstum þrefalt betur til að búa til varmaorku en til að búa til rafmagn vegna minni nýtni dísilvéla. Sú staða gæti þó komið upp ef ákveðið yrði að leggja af rafkyntar hitaveitur og skipta yfir í beina rafhitun. Þá þyrfti að auka dísilknúið varaafl um allt að 16 MW, sem væri fráleit niðurstaða þegar hægt er að byggja upp forgangsorku í
vatnsaflsvirkjunum á svæðinu sem tryggja meira afhendingaröryggi en dísilknúið varaafl.

Dísilknúnir rafbílar

Í grein sinni gerir ráðherra grein fyrir því að vel geti komið upp sú staða að rafbílar sem fara um Vestfirði séu knúnir með raforku sem framleidd er með dísilolíu í varaaflsstöðvum. Því miður er slík staða oft að koma upp, bæði vegna
ófyrirséðra atburða af völdum veðurs og vegna fyrirbyggjandi viðhalds í raforkukerfinu.
Líklega er fáum það ljóst að um verulega varaaflsframleiðslu er að ræða vegna fyrirbyggjandi viðhalds í raforkukerfinu, en í fyrrasumar þurfti að keyra dísilknúið varaafl bæði í varaaflsstöð Landsnets og varaaflsstöðvum Orkubúsins fyrir
rafkyntu hitaveiturnar í 20 daga á meðan unnið var að fyrirbyggjandi viðhaldi á flutningslínum Landsnets.
Rafbílar á Vestfjörðum voru þá að taka rafmagn sem framleitt var með dísilolíu. Landsnet hefur nú þegar upplýst Orkubúið um áætlað fyrirbyggjandi viðhald á flutningslínum á næstu vikum, sem hafa mun þau áhrif að keyra þarf olíuknúið varaafl með tilheyrandi kostnaði. Koma mætti í veg fyrir þá notkun dísilolíu að fullu með því að byggja upp raforkuframleiðslu innan Vestfjarða.

Aukið forgangsafl og minnkun varaafls um 90%

Orkubú Vestfjarða vinnur nú að rannsóknum vegna 9,9 MW Kvíslatunguvirkjunar í Steingrímsfirði og 20 til 30 MW Vatnsdalsvirkjunar inn af Vatnsfirði. Með tilkomu þeirra virkjana mætti draga úr framleiðslu raforku með dísilolíu
á Vestfjörðum um 90%. Auk þess vinnur Orkubúið að jarðhitaleit bæði á Ísafirði og á Patreksfirði.
Nýting jarðhita gæti minnkað þörfina á raforku til kyndingar. Virkjanaáformin munu að sjálfsögðu þurfa að hljóta lögbundna skipulagsmeðferð og fara m.a. í umhverfismat. Orkubúið telur þó að hægt sé að tryggja lámarksáhrif
á umhverfið í báðum þessum virkjanakostum.

Stefna stjórnvalda og loftslagsmarkmið

Aukning forgangsafls með virkjunum á Vestfjörðum fellur vel að stefnu stjórnvalda um kolefnishlutleysi og skuldbindingar í loftslagsmálum, um leið og sjálfbærni í orkuöflun á Vestfjörðum eykst. Þeir virkjunarkostir
sem hér eru nefndir hafa báðir uppistöðulón með mikla miðlunargetu og nægilegt afl til að jafngilda
hringtengingu (N-1) á raforkukerfinu. Ef verkefnin yrðu að veruleika mætti draga úr kolefnisspori vegna varaaflsframleiðslu með dísilolíu um 90% um leið og mætt yrði aukinni þörf fyrir raforku á Vestfjörðum vegna orkuskipta og aukinnar atvinnustarfsemi, sem væri stórt skref í þágu loftslags- og landverndar.

Elías Jónatansson, Orkubússtjóri.

DEILA