Coerver Coaching á Ísafirði 08.-10. ágúst

Coerver Coaching verður með knattspyrnunámskeið á gervigrasvellinum á Ísafirði 08.-10. ágúst nk.  

Námskeiðið er fyrir öll börn fædd 2009-2016.

Skráning er hafin og fer hún fram í Sportabler

Verðið eru kr. 16.500,-

Hér er dagskráin:

Iðkendur f. 2013-2016
Þri-Mið-Fim
Kl. 09.00-12.00

Iðkendur f. 2009-2012
Þri-Mið-Fim
Kl. 13.00-16.00

Allir iðkendur fá Coerver treyju frá Adidas.

Haustið 2022 tók Coerver Coaching á Íslandi þátt í knattspyrnumóti í Svíþjóð hvar var keppt í 11 manna liðum.

Verður það nú árlegur viðburður. Sú ferð er fyrir áhugasama Coerver Coaching leikmenn í 5. og 4. aldursflokki.

Einnig munu áhugasamir Coerver Coaching leikmenn í 4. flokki eiga möguleika á að á að taka þátt í sameiginlegum ferðum Coerver Coaching á Norðurlöndum.

Slíkar ferðir verða einnig árlegur viðburður hjá Coerver Coaching á Íslandi.

Yfirþjálfari Coerver Coaching á Íslandi er Heiðar Birnir Torleifsson.

Póstfang: heidar.torleifsson@coerver.is
Sími: 856-0300

Coerver Coaching var stofnað árið 1984 af þeim Alfred Galustian og Chelsea goðsögninni Charlie Cooke.

Coerver Coaching á Íslandi hefur starfað frá árinu 2013 og er því 10 ára starfsafmæli í ár.

Hér er Coerver Iceland á Facebook

Hér er heimasíða Coerver Iceland

DEILA