Ísafjörður: þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun í leikskólum

Ísafjarðarbær hélt á fimmtudaginn uppskeruhátíð til að fagna árangri af  þróunarverkefni um snemmtæka íhlutun með áherslu á málþroska og læsi barna sem starfsfólk leikskóla Ísafjarðarbæjar hefur unnið að síðan í vetur. Innleiðingin hefur gengið vel og af því tilefni var uppskeruhátíðin haldin með starfsfólki Menntamálastofnunar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði á fimmtudaginn.

Frá þessu er greint á vefsíðu Ísafjarðarbæjar.

Guðrún Birgisdóttir, skóla- og sérkennslufulltrúi Ísafjarðarbæjar, setti uppskeruhátíðina og hrósaði stjórnendum leikskólanna fyrir einstaka þrautsegju í verkefnavinnunni. Katrín Ósk Þráinsdóttir, verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun, og Sverrir Óskarsson, sviðsstjóri matssviðs Menntamálstofnunar, voru viðstödd og færðu stjórnendum leikskólanna bókagjafir fyrir hönd stofnunarinnar.

Markmið verkefnisins er að leikskólabörn nái hámarksárangri hvað varðar mál, tal og boðskipti og undirbúning hvað varðar lestur og læsi. Unnið er að því að efla þekkingu, skilning og færni starfsfólks skólanna á málörvun og málþroska í samræmi við hugmyndafræði um snemmtæka íhlutun og heildstæða skólastefnu. 

DEILA