Með Ísafjarðarbíó í 35 ár

Þann 1. maí síðastliðinn voru rétt 35 ár liðin frá því að Steinþór Friðriksson tók við Ísafjarðarbíó. Jafnframt hefur hann rekið skemmtistaðinn Krúsina sem er í húsinu.

Steinþór minntist tímamótanna á facebook síðu sinni og sagði að svo sannarlega mætti segja að sambúðin við bíóið og Krúsina hafi verið í blíðu og stríðu. „En alltaf hefur þetta gengið upp með góðra manna hjálp. Og oftast hefur þetta verið gaman.“

Hann birti auglýsingu um þær kvikmyndir sem voru til sýningar í Ísafjarðarbíó fyrir 35 árum og þar má sjá myndir sem margir muna eflaust eftir enn í dag.

DEILA