Eyrarrósin: alþjóðleg píanóhátíð í Vesturbyggð hlaut hvatningarverðlaun

Alþjóðleg píanóhátíð í Vesturbyggð hlaut hvatningarverlaun Eyrarrósarinnar.

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í átjánda sinn miðvikudaginn 3. maí, við hátíðlega athöfn á Hvammstanga. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin.

Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni. Aðalheiður Eysteinsdóttir, tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð kr. 2.500.000. Eyrarrósarhafa verður jafnframt boðið að standa að viðburði á Listahátíð 2024 og að auki verður framleitt stutt og vandað heimildamyndband um verkefnið.

Alls bárust 33 umsóknir um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2023 hvaðanæva að af landinu.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar eru nú veitt í annað sinn og eru veitt þremur verkefnum sem hafa verið starfrækt í þrjú ár eða skemur. Viðurkenningin er veitt metnaðarfullum verkefnum sem þykja hafa listrænan slagkraft, jákvæð áhrif á nærsamfélagið og hafa alla burði til að festa sig í sessi.

Hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2023 hlutu Alþjóðleg píanóhátíð á Vestfjörðum, Vesturbyggð, Hnoðri úr norðri, Akureyri og Raddir úr Rangárþingi, Hellu. Hljóta þau hvert um sig verðlaunafé að upphæð kr. 750.000 auk gjafakorts frá Icelandair að upphæð kr. 100.000.

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Icelandair.

Andrew Yang og Elizu Reed. Ljósmynd: Skúli Gautason.

DEILA