Efnalaugin Albert: eigendaskipti

Eigendaskipti urðu á Efnalauginni Albert á Ísafirði þann 1.maí síðastliðinn. Hjónin Einar og Barbara Gunnlaugsson sem hafa rekið fyrirtækið í tæp 26 ár hafa nú selt reksturinn.

Í fréttatilkynningu frá þeim segir: „Við hjónin viljum þakka öllum viðskiptavinum kærlega fyrir viðskiptin á liðnum árum. Við vonum svo sannarlega að þið takið vel á móti nýja eigandanum og munið eiga með henni gott samstarf. Nýi eigandinn er Agnieszka Józwik, hún vonar einnig eftir farsælu samstarfi.“

Fyrirtækið mun áfram heita Efnalaugin Albert, en fær nýja kennitölu og nýtt netfang.

Agnieszka undirritar kaupsamninginn.

DEILA