Dynjandisheiði: þungatakmörkun aflétt í dag

Takmörkun á ásþunga á Vestfjarðavegi (60) um Dynjandisheiði verður aflétt í dag miðvikudaginn 3. maí kl. 13:00.

Áfram er í gildi takmörkun við 5 tonn á Bíldudalsvegi (63), frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi (60) í Helluskarði.

Þetat kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun.

DEILA