Sögusýning Tónlistarskóla Ísafjarðar opnuð 3. maí

Fjölmargt áhugavert verður á sýningunni

Í tilefni 75 ára afmælis Tónlistarskóla Ísafjarðar verður opnuð sögusýning um blómlega starfsemi skólans.

Sýningin verður opnuð miðvikudaginn 3. maí.

Áður en sýningin hefst verða sungin vor/sumarlög í Hömrum kl. 17:00. 

Samæfingarkakan sem er döðlukaka eftir uppskrift frú Sigríðar Ragnar verður á boðstólum. Í framhaldinu gefst kostur á að skoða sýninguna á fyrstu hæð skólans.

Vorþytur sem eru vortónleikar Lúðrasveitanna verða svo kl. 18:00.

Allir velunnara Tónlistarskóla Ísafjarðar eru boðnir velkomnir til að rifja upp gamla tíma og gerast fróðari um sögu skólans í leiðinni.

Arnheiður Steinþórsdóttir vann að sýningunni og naut aðstoðar Gunnars Bjarna Guðmundssonar við hönnun og útprentun.

DEILA