Nýsköpunarfyrirtækið Sæbýli: Sigurður Markússon ráðinn framkvæmdastjóri þróunar

Sæbýli hefur undanfarin ár þróað eigin klakstofn, tækni og framleiðsluaðferðir við eldi á sæeyrum (e. abalone) og fyrirhugar mikla uppbygging á komandi árum undir vörumerkinu Aurora Abalone. Hátækniaðferð Sæbýlis er einstök á heimsvísu. Byggir hún meðal annars á lóðréttu eldiskerfi í hillum og nýtingu á volgum síuðum jarðsjó til framleiðslu. Sæeyru eru sæsniglar og ein verðmætasta eldistegund í heimi. Sæbýli horfir m.a. á framleiðslu fyrir sushi veitingastaði í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu.

Stjórnarformaður Sæbýlis er frumkvöðullinn og Vestfirðingurinn Sigurður Pétursson, sem var stofnandi og einn af eigendum Arctic Fish.

Sigurður Markússon mun leiða uppbyggingu áframræktunar fyrirtækisins í Auðlindagarðinum á Reykjanesi þar sem heitur jarðsjór og endurnýjanleg orka frá Reykjanesvirkjun verður nýtt til að knýja framleiðslu fyrirtækisins.

Sigurður, sem hefur ættir að rekja til Ísafjarðar, kemur til Sæbýlis frá Landsvirkjun þar sem hann var forstöðumaður nýsköpunar. Hann hefur 15 ára reynslu af nýsköpun og þróun í orkugeiranum. Hann er með meistaragráðu í sjálfbærni og stjórnun frá háskólanum í Cambridge ásamt því að vera með meistaragráðu í jarðefnafræði frá Háskóla Íslands.

DEILA