Fiskeldi leyft í Bjarnarfirði á Ströndum

Ásmundarnes í Bjarnarfirði í Kaldrananeshreppi.

Matvælastofnun hefur veitt Nesvegi 5 ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Ásmundarnesi í Bjarnarfirði á Ströndum.

Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 8. desember 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 5. janúar 2023.

Nesvegur 5 ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 45 tonna hámarkslífmassa í seiðaeldi á regnbogasilung að Ásmundarnesi. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 1. apríl 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 er framkvæmdin ekki tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. 

DEILA