Bolungavík: íbúafundur um Bolafjall

Fimmtudaginn 27.apríl nk. kl.18 verður haldin íbúafundur í Bolungarvík vegna stefnumótun um áfangastaðinn Bolafjall. Í vetur var unnið að framtíðarstefnu fyrir útsýnispallinn á Bolafjalli með ráðgjafafyrirtækinu Cohn&Wolf með styrk frá Vestfjarðastofu.

Niðurstaða stefnumótunarvinnunar verður kynnt á opnum íbúafundi í Félagsheimilinu í Bolungarvík fimmtudaginn 27.apríl kl.18. Boðið verður uppá súpu og brauð fyrir fund.

Á fundinum mun Ingvar Örn Ingvarsson, ráðgjafi frá CohnWolf fara yfir niðurstöður stefnumótunarvinnunar.

DEILA