Vörumessa nemenda MÍ í dag

Vörumessa Ungra frumkvöðla verður haldin 27. mars kl. 12-17 með formlegri opnun kl. 12:20  í Vestfjarðarstofu, boði verður upp á léttar veitingar. Gestum gefst tækifæri á að kynna sér nýsköpunarhugmyndir nemenda í áfanganum Hugmyndir og nýsköpun en nemendur verða með til sölu vörur sem og kynna frumgerðir. Vörumessan er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

Verið öll velkomin

Fyrirtækin:
ALMA
Árís
Fjörður Skipti hjálp
Fructus aroma
ISL ljós
JGG clothing
Poddi
Slétt og brugðið
Skurðarbretti  
Rafræn kynning
Dósateus
Gervigreindar bloggið
Lilja útgáfa
Máttur ehf.
MommyPot
Svanlind    

Nánar um verkefnið

Á vörumessu Ungra frumkvöðla stofna nemendur og reka eigið fyrirtæki auk þess að vinna að nýsköpunarhugmynd sem miðar að því að efla skilning þeirra á nýsköpun. Framkvæmdin er höfð eins raunveruleg og kostur er.

Á uppskeruhátíð sem haldin er ár hvert velur dómnefnd sigurvegara í ýmsum flokkum. Það fyrirtæki sem hlýtur titilinn „fyrirtæki ársins“ tekur þátt í Evrópukeppni ungra frumkvöðla – GEN_E

Mentorar úr viðskiptalífinu aðstoða og veita nemendum leiðsögn með fyrirtækið sitt.

Markmiðið er:

  • að efla skilning og þekkingu nemenda á því hvernig fyrirtæki eru skipulögð og rekin
  • að kynna ólíkan starfsvettvang og undirstöðuatriði þess að taka þátt í atvinnulífi
  • að þróa skilning nemenda á lögmálum efnahagslífsins sem hafa áhrif á ákvarðanatöku og rekstur fyrirtækja
  • að hlúa að jákvæðum samskiptum á milli nemenda og fólks/fyrirtækja í atvinnulífinu


Nemendur læra og framkvæma:

  • þróun viðskiptahugmyndar
  • að sækja um og ráða í stöður í eigin fyrirtæki
  • gerð viðskiptaáætlunar, markmiðasetningu, markaðsmál, fjármál og starfmannamál
  • að fjármagna eigin rekstur með sölu hlutabréfa

um siðferði, samvinnu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku

DEILA