Heilbrigðisstofnun Vestfjarða – Álagi létt af heilsugæslu og heimilislæknum

Til að létta á álagi á heilsugæslu og heimilislæknum hafa sjúkraþjálfarar í auknum mæli komið inn sem fyrsti móttökuaðili einstaklinga með stoðkerfisvandamál.

Þá er veitt snemmtæk íhlutun í formi greiningar og ráðlegginga en ekki hefðbundin meðferð sjúkraþjálfara. Þannig er annarsvegar hægt að nálgast vandamálið fyrr og þar með minnka líkur á að það verði langvinnt og hinsvegar að minnka álag á heimilislækna.

Stoðkerfismóttaka sjúkraþjálfara tekur á móti einstaklingum með einkenni og/eða verki frá stoðkerfi. Helsta markmið er að koma í veg fyrir versnun einkenna og koma bata í gang eins fljótt og hægt er.

Sjúkraþjálfarinn veitir fyrst og fremst fræðslu og ráðleggingar í formi sjálfshjálpar á borð við æfingar, hvíldarstöður, teipingar, vinnustellingar eða sjálfsmeðferðar í formi hita og kælimeðferðar, mjúkvefjameðferðar eða annars.
Eftirfylgni með ráðgjöfinni er veitt í formi símtals, oftast 2-3 vikum frá komu til sjúkraþjálfarans.
Ef sjúkraþjálfari á heilsugæslu telur málið þess eðlis þá getur hann skrifað beiðni um sjúkraþjálfun og vísað einstaklingnum til meðferðar hjá sjúkraþjálfara utan heilsugæslunnar.

Fyrirkomulag á Heilsugæslustöðinni á Ísafirði
Boðið er upp á stoðkerfismóttöku sjúkraþjálfara 3x í viku á heilsugæslu. Tímarnir eru eftirfarandi:

Á þriðjudögum frá 08:00-11:00

Á miðvikudögum frá 13:00-16:00

Á föstudögum frá 08:00-11:00

Aðstaðan er til staðar á endurhæfingardeild í herbergi númer 6.

Einstaklingar geta bókað sig beint í stoðkerfismóttöku (í gegnum móttöku eða heilsuveru) eða fengið tilvísun frá öðru heilbrigðisstarfsfólki svo sem læknum og hjúkrunarfræðingum.

Ef sjúkraþjálfari telur að einstaklingur sem leitar á stoðkerfismóttöku þurfi læknisskoðun eða myndrannsóknir þá hefur hann aðgang til að bóka tíma hjá lækni án þess að löng bið eftir tíma myndist.

DEILA