Styrki til menningarmála í Ísafjarðarbæ

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki til menningarmála og er umsóknarfrestur til og með 7. mars.

Bent er á að frá og með 1. janúar 2022 gilda nýjar reglur um styrki til menningarmála.

Í nýju reglunum er kveðið á um að styrkjum skuli úthlutað einu sinni á ári, að vori, í stað þess að úthluta tvisvar, að vori og hausti.

Menningarstyrkir ársins 2023 eru áætlaðir 2,4 m.kr. en styrkur til einstaks verkefnis getur almennt ekki verið hærri en kr. 250.000 kr.

Við úthlutun styrks fá styrkhafar sent greinargerðarform í þjónustugátt. Að verkefni loknu skal greinargerð berast sveitarfélaginu, fyrir árslok á úthlutunarári, og greiðist styrkur þegar greinargerð hefur borist.

DEILA