Dagur tónlistarskólanna – tónlistarveisla í Ísafjarðarkirkju á laugardaginn kl. 14

Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur með tónlistarveislu í Ísafjarðarkirkju á laugardaginn kl. 14. Aðgangur ókeypis.

Dagskrá:

Fjöldasöngur (sjá neðst)

Skólalúðrasveit Tónlistarskólans:

George O´Dow: Karma Chameleon
Max Martin: Oops!… I Did It Again
Billy Joel: We Didn´t Start The Fire

Píanótríó, Judy Tobin, Oliver Rähni, Rebekka Skarphéðinsdóttir:

Rakkmanínov: Rómansa í A-dúr úr „Tvö stykki fyrir sex hendur“ (две пьесы на шесть рук)

Lúðrasveit Tónlistarskólans:

Christine McVie: Don´t Stop
Don Henley: Hotel California
Mike Hawker: I Only Wanna Be With You

Kórar Tónlistarskólans: 

Enskt þjóðlag: Morgunn í nánd

Höf. ókunnur: Svefnpurkublús

Ísófónía:

Syrpa, Í Hlíðarendakoti  (Friðrik Bjarnason) – Óðurinn til gleðinnar (L.v. Beethoven) – Á Sprengisandi (Sigv. Kaldalóns).

Steven Greenberg: Funky Town

Verið velkomin!

Fjöldasöngur: Kvæðið um fuglana

Snert hörpu mína, himinborna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalarstúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.

Úr furutré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.

Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.

Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himinborna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.

Davíð Stefánsson / Atli Heimir Sveinsson

Stillt upp fyrir æfingu í Hömrum

DEILA