Merkir Íslendingar – Kristján Bersi Ólafsson

Kristján Bersi fæddist í Reykjavík þann 2. janúar 1938. 

Foreldrar hans voru Ólafur Þ. Kristjánsson skólastjóri frá Kirkjubóli í Bjarnardal í Önubdarfirði og Ragnhildur G. Gísladóttir húsfreyja.

Systkini  Ólafs voru; Halldór frá Kirkjubóli og Guðmundur Ingi, skáld á Kirkjubóli og Jóhanna á Kirkjubóli.

Ólafur var sonur Kristjáns, bónda þar, bróður Guðrúnar, ömmu Gests arkitekts sem er faðir Guðrúnar Sóleyjar í menningunni á RUV og Valdimars flugumferðarstjóra, föður Þórunnar, sagnfræðings og rithöfundar.

Móðir Ólafs skólastjóra var Bessa, systir Friðriku, ömmu Einars Odds Kristjánssonar alþm.

Systur Kristjáns Bersa:

Ásthildur skólaritari, móðir Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings og Tryggva Harðarsonar, fyrrv. bæjarstjóra, og Ingileif Steinunn hjúkrunarfræðingur, móðir lögfræðinganna Gunnars og Margrétar Viðar.

Eiginkona Kristjáns Bersa er Sigríður Bjarnadóttir og eignuðust þau fjögur börn: Freydísi, Ólaf Þ., Jóhönnu sem lést 1973, og Bjarna Kristófer.

Kristján Bersi lauk stúdentsprófi frá MR 1957, fil. kand.-prófi frá Stokkhólmsháskóla 1962 og prófi í uppeldis- og kennslufræðum í HÍ 1971.

Kristján Bersi var blaðamaður á Tímanum 1962-64, blaðamaður og ritstjóri á Alþýðublaðinu 1965-70, kennari við Flensborgarskólann í Hafnarfirði 1970-72, skólastjóri þar 1972-75 og skólameistari þar 1975-99, er hann lét af störfum.

Kristján Bersi var formaður Blaðamannafélags Íslands 1967-68, sat í stjórn Félags háskólamenntaðra kennara og stjórn Hins íslenska kennarafélags og var formaður Félags áfangaskóla í nokkur ár. Þá var hann varaformaður Bandalags kennarafélaga 1983-87.

Kristján Bersi ritaði sögu Flensborgarskólans í 100 ár, útg. 1982. Hann skrifaði fjölda ritgerða og greina í blöð og tímarit auk þess sem hann var afkastamikill þýðandi og prýðilegur hagyrðingur.

Kristján Bersi Ólafsson var í sigurliði Önfirðingafélagsins í fyrstu spurningakeppni átthagafélaganna árið 1998. Í liðinu með honum voru Rakel Brynjólfsdóttir á Þingeyri sem er frá Vöðlum í Önundarfirði og Gísli Rúnar Gíslason frá Flateyri en hans rætur í föðurætt liggja að Höfða í Dýrafirði. 

Kristján Bersi Ólafsson lést þann 5. maí 2013.

Sigurlið Önfirðingafélagsins í fyrstu Spurningakeppni átthagafélaga árið 1998 ásamt stjórnanda. F.v.: Rakel Brynjólfsdóttir frá Vöðlum, Gísli Rúnar Gíslason frá Flateyri, Ragnheiður Erla Bjarnadóttir stjórnandi keppninnar og Kristján Bersi Ólafsson frá Kirkjubóli í Bjarnardal.

DEILA