Kynning á meistaranámi Háskólaseturs Vestfjarða: Sjávarbyggðafræði og Haf- og strandsvæðastjórnun

Miðvikudaginn 1. febrúar og viku seinna þann 8. febrúar verður neistaranámsleiðir við Háskólasetur Vestfjarða kynntar.

Fagstjórar meistaranáms í sjávarbyggðafræði og haf- og strandsvæðastjórnun, Dr. Matthias Kokorsch og Dr. Brack Hale, segja frá námsleiðunum tveimur, uppbyggingu þeirra, áherslum og atvinnumöguleikum. Fagstjórarnir og núverandi nemendur svara spurningum þátttakenda að kynningunni lokinni. Kynningin fer fram á ensku í gegnum Zoom.

Smellið hér til að skrá ykkur á viðburðinn.

Sjávarbyggðafræði er eina sérhæfða byggðafræðinámið á Íslandi. Námið er þverfræðilegt meistaranám þar sem fengist er við þróun byggða í fortíð og framtíð. Námið byggir einkum á félagsfræði, hagfræði, mannvistarlandfræði og skipulagsfræði.

Haf- og strandsvæðastjórnun er þverfræðilegt meistaranám á sviði umhverfis- og auðlindastjórnunar með áherslu á hafið og ströndina. Í náminu kynnast nemendur ýmsum aðferðum við stjórnun haf- og strandsvæða út frá efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum forsendum.

Námsleiðirnar eru kenndar á Ísafirði í samstarfi við Háskólann á Akureyri og útskrifast nemendur með gráðu frá HA.

Nemenda- og kennarahópurinn er mjög fjölbreyttur en bæði kennarar og nemendur koma víða að úr heiminum og hafa margvíslegan bakgrunn.

Inntökuskilyrði í báðar námsleiðir eru þau að umsækjandi hafi lokið grunnháskólagráðu BA, BSc eða BEd, óháð námsgrein.

Umsóknarfrestur: 15. apríl 2022.

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð má finna á vefsíðum námsleiðanna:

– Sjávarbyggðafræði

– Haf- og strandsvæðastjórnun

DEILA