Kveðjuhóf í Safnahúsi

Staðarhaldari á Hrafnseyri, Valdimar J. Halldórsson, hefur nú látið af störfum eftir tæplega 18 ára starf. Hrafnseyrarnefndin fyrrverandi, Prófessorsembættið í nafni Jóns Sigurðssonar og Byggðasafn Vestfirðinga efna til kveðjuhófs til heiðurs Valdimari næstkomandi föstudag 3. febrúar og hefst það kl 16.

Háskólasetrið hefur boðist til þess að halda utan um samkomuna. Allir samfylgdarmenn Valdimars og allir áhugamenn um Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns Sigurðssonar, eru hjartanlega velkomnir.

Léttar veitingar.

Valdimar J. Halldórsson.

DEILA