Skötuveisla Björgunarfélags Ísafjarðar í dag

Á Þorláksmessudag mun Björgunarfélag Ísafjarðar að venju bjóða til skötuveislu í Guðmundarbúð á Ísafirði.

Þetta er í 18. skipti sem liðsmenn Björgunarfélagsins þakka fyrir sig með þessum hætti og hefur mæting verið mjög góð í öll skiptin.
Byrjað verður að bera fram veitingarnar kl. 11:30 og verða veitingar í boði eitthvað vel fram yfir hádegi. Einnig verður boðið upp á saltfisk fyrir þá sem ekki vilja skötuna.

Baukurinn verður á staðnum fyrir þau sem vilja leggja Björgunarfélaginu lið.
Takk fyrir stuðninginn!

DEILA