Hannes Hafstein – 100 ára ártíð

Hannes Hafstein lést þann 13. desember 1922 og í dag – 13. desember 2022 er því 100 ára ártíð hans.

Hannes Þórður Hafstein, skáld og fyrsti íslenski ráðherrann, fæddist á Möðruvöllum í Hörgárdal þann 4. desember 1861.

Hann var sonur J. Péturs Havsteen, amtmanns á Möðruvöllum, og þ.k.h., Kristjönu Gunnarsdóttur.

Bróðir Kristjönu var Tryggvi Gunnarsson bankastjóri en móðir þeirra var Jóhanna, dóttir Gunnlaugs, ættföður Briem-ættarinnar. Hannes var því af Briem-ætt eins og forsætisráðherrarnir Jóhann Hafstein, Gunnar Thoroddsen og Davíð Oddsson.

Hannes bjó í ástríku hjónabandi með Ragnheiði Melsteð en þau þóttu óvenju glæsileg hjón og eignuðust fjölda barna. Foreldrar Kristjönu voru Stefán Thordersen alþingismaður og kona hans Sigríður Ólafsdóttir Stephensen, sem áður var 2. kona Péturs, föður Hannesar.

Börn Hannesar og Kristjönu:
Sigurður (1891), Kristjana (1892), Ástríður (1893), Þórunn (1895), Sigríður (1896), Sofía Lára (1899), Elín Jóhanna Guðrún (1900), Ragnheiður (1903), Kristjana (1911), Sigurður Tryggvi (1913).

Margir afkomenda Hannesar og Ragnheiðar hafa orðið þjóðkunnir.

Hannes var í heimaskóla hjá Eggerti Briem, ömmubróður sínum á Reynistað, og innritaðist tólf ára í Lærða skólann. Hann byrjaði ungur að yrkja og þótti snemma efnilegt skáld, lauk stúdentsprófi 1880 og lögfræðiprófi frá Hafnarháskóla 1886.

Fyrstu árin í Kaupmannahöfn drakk Hannes í sig bókmenntir og stofnaði tímaritið Verðandi, ásamt Bertel E.Ó. Þorleifssyni, Gesti Pálssyni og Einari Kvaran og varð persónulegur vinur Georgs Brandes.

Hannes varð sýslumaður Dalasýslu 1887, málflutningsmaður við Landsyfirréttinn og landshöfðingjaritari 1889, og sýslumaður Ísafjarðarsýslu 1895 – 1904.

Hannes var alþingismaður Ísfirðinga 1900–1901, alþingismaður Eyfirðinga 1903–1915, landskjörinn alþingismaður 1916–1922, sat síðast á þingi 1917 (Heimastjórnarflokkurinn, Sambandsflokkurinn, Heimastjórnarflokkurinn).

Hannesi var falið að undirbúa heimastjórn á Íslandi og skipaður fyrsti ráðherrann þar 1. febrúar 1904 við upphaf heimastjórnar. Hann missti meirihluta á þingi við sambandslagakosningarnar frægu 1908 og vék eftir samþykkta vantrauststillögu í ársbyrjun 1909. Hann varð aftur ráðherra 1912-1914, og var bankastjóri Íslandsbanka.

Kvæði Hannesar Hafstein hafa birst í mörgum útgáfum. — Ævisaga hans eftir Kristján Albertsson kom út í þrem bindum 1961, 1963 og 1964.

-Ég elska þig stormur- ævisaga Hannesar Hafstein eftir Guðjón Friðriksson kom út 2005.

Hannes Hafstein lést þann 13. desember 1922.

Ráðherrabústaðurinn við Tjarnargötu.

Ráðherrabústaðurinn að Tjarnargötu 32 í Reykjavík. Áður íbúðarhús hvalfangarans Hans Ellefsen að Sólbakki á Önundarfirði. Þarna bjó Hannes Hafsein fyrstur ráðherra á Íslandi.

Hannes Hafstein hjá Stjórnarráðinu við Lækjargötu í Reykjavík.

DEILA