Skólarnir á Ísafirði og Flateyri fá verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf

Útistærðfræði við Grunnskólann á Ísafirði. Mynd: GÍ.

Hvatningarverðlaun fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar fyrir framúrskarandi skólastarf voru afhent fimmtudaginn 27. október.

Alls bárust 10 tilnefningar þegar óskað var eftir tilnefningum frá íbúum og ákvað nefndin að veita tvö verðlaun að þessu sinni. Grunnskóli Önundarfjarðar hlaut verðlaun fyrir verkefnið Samstarf leik og grunnskóla – brú milli skólastiga og Grunnskólinn á Ísafirði hlaut verðlaun fyrir verkefnið Útistærðfræði á unglingastigi.

Brú milli skólastiga er samstarfsverkefni Grunnskólans í Önundarfirði og leikskólans Grænagarðs þar sem elstu nemendur leikskólans koma í grunnskólann tvisvar í viku til að vinna með yngstu nemendunum þar.

Kristbjörg Sunna Reynisdóttir, skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar, Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir, kennari, og Sigríður Anna Emilsdóttir, leikskólastjóri Grænagarðs.

Kennsla fer ávallt fram í gegnum leik og byggir á áhugahvöt nemendanna. Í útikennslunni er umhverfið nýtt sem uppspretta náms og meðal annars sóttur efniviður í nágrenninu til að tálga og nýta sem eldivið, eitt af því fjölmarga sem börnin hafa lært að búa til á eldinum eru teiknikol sem þau síðan teiknuðu með.

Útistærðfræði á unglingastigi við Grunnskólann á Ísafirði nýtir útikennslu til að nálgast stærðfræði í daglegu lífi. Í lýsingu á verkefninu segir m.a.: Sem dæmi má nefna verkefni þar sem þarf að nota reglu Pyþagorasar, líkindareikning, rúmfræðiverkefni, tímamælingar og margt fleira. Verkefnaskil eru ýmis skrifleg, myndir eða munnleg

Berglind Árnadóttir, Harpa Henrysdóttir og Katrín Sif Kristbjörnsdóttir ásamt Finney Rakel, formanni fræðslunefndar.

Katrín Sif Kristbjörnsdóttir, Bryndís Bjarnason, Harpa Henrysdóttir, Berglind Árnadóttir og Jón Hálfdán Pétursson, kennarar á unglingastigi GÍ, hafa umsjón með verkefninu.

DEILA