Edinborgarhúsið: frá Vesturbyggð til Venesúela – vestfirskar heimsbókmenntir

Edinborgarhúsið stendur fyrir bókmenntavöku í kvöld kl 20 í Bryggjusalnum og þar verða kynntir fimm höfundar sem hafa hver um sig tengingu við Vestfirði.

Í kynningu Edinborgarhússins segir:

Vestfirðir hafa löngum verið líflegur bókmenntaheimur, ekki bara sem sögusvið, heldur sem heimkynni og vinnustaður starfandi rithöfunda, bæði fólks sem er uppalið á svæðinu og annarra sem hafa tekið það í fóstur. Á þessu fyrsta kvöldi vestfirskra heimsbókmennta mæta til leiks fimm höfundar sem hafa allir ólíka tengingu við svæðið og ólíkan uppruna – hin finnska Satu Rämö, sem hefur nýverið skrifað sinn fyrsta krimma, sem gerist einmitt á Ísafirði;

Helen Cova frá Venesúela sem hefur verið búsett á Flateyri og Þingeyri síðustu ár, og gefið út bæði barna- og fullorðinsbækur, og er við það að standsetja forlag á Flateyri sem sérhæfir sig í rómansk-amerískum bókmenntum; Eiríkur Örn Norðdahl, sem er uppalinn Ísfirðingur frá Kópavogi, Akranesi, Iserlohn og Norðurárdal;

Birta Ósmann Þórhallsdóttir, smásagnahöfundur og ljóðskáld sem rekur bókaforlagið Skriðu á Patreksfirði;

og hin litháíska Greta Lietuvninkaite, sem auk þess að kenna ritlist á Ísafirði hefur gefið út vinsæla bók í Litháen, sem fjallar meðal annars um Ísland og Lithaén.

Vonir standa til þess að vestfirsk heimsbókmenntakvöld geti orðið að reglulegum viðburði þar sem lögð verður áhersla á höfunda á og frá Vestfjörðum auk bóka sem gerast á svæðinu.

Nánari upplýsingar um efnið og höfundana: Edinborg Menningarmiðstöð / Viðburðir / Frá Vesturbyggð til Venesúela – Vestfirskar heimsbókmenntir

Dagskráin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.

DEILA