Góðan daginn faggi: sýningar á Vestjörðum

Leikhópurinn Stertabenda og Þjóðleikhúsið í samstarfi við Samtökin ‘78 ferðast þessa dagana um landið með sýninguna Góðan daginn faggi. Elstu bekkir grunnskóla fá boð á sýningu á skólatíma en einnig verða sýndar almennar sýningar. Verkið verður sýnt fyrir almenning í Edinborgarhúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 28. september kl. 20:00 og í Skjaldborg á Patreksfirði fimmtudaginn 29. september kl. 20:00. Boðið verður upp á stuttar umræður eftir sýningar fyrir áhugasama. 


Góðan daginn faggi var forsýnd á Tálknafirði sumarið 2021 og frumsýnt í Þjóðleikhúskjallaranum haustið 2021 en hafði þá tekið nokkrum breytingum og meðal annars bæst við nýtt lag. Í fréttatilkynningu segir að verkið hafi slegið í gegn í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári, með yfir 40 uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum auk þess sem lagið Næs úr sýningunni var lag Hinsegin daga 2022.

Höfundar verksins eru öll alin upp á landsbyggðinni. Bjarni Snæbjörnsson, leikari frá Tálknafirði, Gréta Kristín Ómarsdóttir, leikstjóri frá Hrísey og Axel Ingi Árnason, tónskáld frá Eyjafjarðasveit. Það er þeim því sérstaklega mikilvægt að ferðast með sýninguna um landið. Það er einlæg von þeirra að með sýningum á verkinu í elstu bekkjum grunnskóla og með almennum sýningum og umræðu sem það skapar verði hægt að vinna gegn einangrun hinsegin unglinga, ofbeldi, fordómum og hatursorðræðu sem hefur sýnt sig að undanförnum að færist í aukana.

Góðan daginn faggi er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur byggður á dagbókarfærslum Tálknfirðingsins Bjarna Snæbjörnssonar frá yngri árum. Í verkinu leitar fertugur hommi skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð sína og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur enga ósnorta.

DEILA