Verkalýðsfélag Vestfirðinga styrkir flóttafólk frá Úkraínu

Bergljót Halldórsdóttir og Finnbogi Sveinbjörnsson

Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti að svara ákalli frá verkalýðsfélögum í Úkraínu og nágrannaríkjum þeirra um stuðning í orðum og verki.

Stjórn Verk Vest lítur á það sem samfélagsskyldu félagsins að veita stríðshrjáðum flóttamönnum aðstoð og lagði því til við aðalfund félagsins að veita styrk til Rauðakross Íslands (RKÍ).

Félagar á aðalfundi samþykktu að veita RKÍ kr.500.000 til aðstoðar við flóttafólk frá Úkraínu.

Bergljót Halldórsdóttir, formaður Rauðakrossdeildarinnar á Ísafirði veitti styrknum móttöku og sagði að fjármunirnir myndu nýtast vel hér á svæðinu þar sem hingað væri þegar kominn nokkur fjöldi flóttafólks frá Úkraínu.

Rétt er að vekja athygli á að ASÍ, SGS og fjöldi stéttarfélaga hefur áður samþykkt veita fé til hjálparstarfs tengdu móttöku flóttamanna frá Úkraínu.

DEILA