Styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku

Menningarsjóðurinn styrkir ungmenni sem geta ekki stundað sitt nám í heimabyggð.

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur.

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2022 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Heiða Jóna Hauksdóttir, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Einnig má senda umsóknir á netfangið: hjhauks@gmail.com

Á síðasta ári voru veittir styrkir að upphæð til eins ungmennis frá Vestfjörðum.

Í stjórn sjóðsins eru:  Heiða Hauksdóttir,  Ásdís Sæmundsdóttir og Sigurður H. Magnússon.

DEILA