KK í Steinshúsi eftir verslunarmannahelgina

Tónlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson, KK, verður með tónleika í Steinshúsi á Langadalsströnd í Ísafjarðardjúpi föstudagskvöldið 5. ágúst, vikuna eftir verslunarmannahelgina. Fyrirhugað var að halda tónleikana fyrr í sumar, en þá var þeim frestað af óviðráðanlegum orsökum.

Allir velkomnir.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkti viðburðinn.

DEILA