KJÖTSÚPUHÁTÍÐ Á HESTEYRI Á LAUGARDAGINN

Um Verslunarmannahelgina verður hin sívinsæla Kjötsúpuhátíð á Hesteyri í Hornstrandafriðlandinu haldin hátíðleg. Hátíðin fer fram laugardaginn 30. júlí n.k. Það eru Hrólfur Vagnsson vert í Gamla Læknishúsinu sem matreiðir Kjötsúpuna eftir uppskrift ættmóðurinnar Birnu Hjaltalín Pálsdóttur.
Eftir súpuna er boðið upp á kaffi og nýbakaðar pönnukökur með sykri og svo verður hin skemmtilegasta dagskrá sem Birna Hjaltalín Pálmadóttir stýrir. Þar verða leikir, söngur, fíflagangur og almennt glens og gaman uns gengið er í fjöru þar sem tendraður verður varðeldur og sungið fyrir hafið.

Í fréttatilkynningu segir að siglt verði frá Bolungavík til Hesteyrar með Hauki Vagnssyni á Hesteyri ÍS 95. Siglingin tekur aðeins um klukkustund.
Hægt verður að velja á milli tveggja brottfarartíma kl 15, og kl 17.  Farið verður til baka kl 21 og kl 23. Athugið, ekki er hægt að keyra til Hesteyrar og því sjóleiðin eina leiðin.

Sætafjöldi er takmarkaður. Bókið á eftirfarandi vefsíðu https://hornstrandaferdir.is/kjotsupuhatidin/

Frekari upplýsingar hjá:
-Haukur Vagnsson í síma 862 2221
-Hrólfur Vagnsson í Læknishúsinu í síma 899 7661

DEILA