Gallerí úthverfa: Fritz Hendrik IV: A Sad Scroll/ skrölt 15.4.-15.5. 2022

Fritz Hendrik

Föstudaginn 15. apríl kl. 16 verður opnun sýning á verkum Fritz Hendrik IV í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið ,,Skrölt / A Sad Scroll‘‘  og stendur til sunnudagsins 15. maí.  Listamaðurinn verður viðstaddur opnun sýningarinnar og boðið verður uppá léttar veitingar

A Sad Scroll / Skrölt  

Stefnulausir fingur sítengdir í strekkt taugakerfi þysja og skrolla endilagt. Taktfastar strokurnar upptendraðar af síendurnýjuðum samhengislausum  myndum sem þær knýja fram. Líkt og ef um dans í kring um bál væri að ræða skröltir og brakar í þeim er þeir ljóstillífa í hringiðunni. 

Fritz Hendrik IV (f. 1993) er íslenskur myndlistamaður sem að býr og starfar í Reykjavík. Fritz hefur meðal annars haldið einkasýningar í Kling og Bang og Bærum Kunsthall í Noregi auk þess að hafa tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Verk Fritz eru í eigu einkaaðila og safnara sem og Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.   

Gallerí Úthverfa / Outvert Art Space
Aðalstræti 22 – 400 Ísafjörður

DEILA