Varað við hættu vegna snjósöfnunar undir háspennulínur

Varað er við hættu sem skapast hefur víða um land vegna snjósöfnunar undir og við háspennulínur.

Vegfarendur, ferðamenn og þá sérstaklega vélsleðafólk sem leið eiga um hálendisvegi og víðar eru beðin um að gæta varúðar og halda góðri fjarlægð frá öllum háspennulínum og búnaði.

Með hækkandi sól aukast ferðalög á fjöllum og því vill Landsnet vekja athygli á því að víða á hálendinu er nú hættulega stutt upp í háspennulínur vegna mikilla snjóalaga.

Þá skal áréttað að háspennulínur eru ekki alltaf sýnilegar vegna snjóa og slæms skyggnis. Í miklu fannfergi minnkar bil frá jörðu að línu og ísing getur leitt til þess að línur sigi mikið.

Við verstu aðstæður geta leiðarar verið á kafi í snjó og lífsnauðsynlegt að gæta ýtrustu varúðar. Allir sem ætla að fara á fjöll, bæði vélsleða-, skíða- og göngufólk, eru því hvattir til að fara með mikilli gát nærri háspennulínum og möstrum.

Góð regla er að athuga hvort og þá hvar háspennulínur liggja um það svæði sem ferðast skal um, áður en lagt er af stað.

DEILA