Uppbyggingarsjóður Vestfjarða – styrkir til verkefna í Ísafjarðarbæ

Í garðinum hjá Láru. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fyrr í desember var úthlutað 57 styrkjum á næsta ári til verkefna á Vestfjarða úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða. Ísafjarðarbær hefur tekið saman yfirlit yfir styrki til verkefna í sveitarfélaginu.

Edinborgarhúsið á Ísafirði 2,5 m.kr. fékk rekstrarstyrk á ári til þriggja ára en Skóbúðin hversdagssafn 1.200.000 kr, Kómedíuleikhúsið 1.000.000 kr og Kol & salt/Gallerý Úthverfa 600.000 kr hlutu einnig rekstrarstyrki. 

Þá fór hæsti styrkurinn 2.700.000 kr til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna til verkefnisins Gráðaostagerð Önundarfjarðar. Því er svo lýst:

„Árið 1913 flutti Jón Guðmundsson á Þórustöðum í Önundarfirði inn roquefort ostagerla frá Frakklandi og bjó til úr honum fyrsta íslenska gráðaostinn árið 1913 úr sauðamjólk. Í verkefninu verður handverk Jóns endurvakið og þróað með framleiðslu á hágæða gráðaosti sem verður framleiddur á Flateyri úr sauðamjólk eftir gömlum hefðum.“

Einnig hlutu styrk 2.000.000 kr úr sama flokki verkefni Elíasar Guðmundssonar um nýtingu á birkiskógum Vestfjarða í reykspæni sem er svo nýttur til þess að reykja fisk, Vitalína Kertahússins á Suðureyri 1.500.000 kr og verkefni Satu Raemö, Daytripster – sýndarveruleikaupplifun á Vestfjörðum 500.000 kr.

Fjögur hjólaverkefni úr Ísafjarðarbæ hlutu einnig styrk í flokki atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna; Cycling Westfjords sem Halldóra Björk Norðdahl stendur fyrir, The Westfjords Way Challenge sem Tyler James Wacker stendur fyrir, verkefni Skútusiglinga, Hjólað um Vestfirði – Westfjords the Cycle Way og verkefni hjólreiðadeildar Vestra, Markaðsetning Ísafjarðar sem áfangastað fjallahjólarans.

Fjölmargir styrkir voru einnig veittir til menningarverkefna í Ísafjarðarbæ, meðal annars til Edinborgarhússins, Act Alone, Tónlistarskóla Ísafjarðar og fyrir verkefnin Í garðinum hjá Láru á Þingeyri, Lesið í sköpunarkraft Vestfjarða á Ísafirði og Flatbirds Art Walk á Flateyri. Þá fékk Kómedíuleikhúsið styrk vegna leikritsins Gústi Guðsmaður, Fryderic Chopin tónlistarfélagið fékk styrk fyrir F. Chopin tónlistarhátíð á Ísafirði, Dagrún Matthíasdóttir hlaut styrk fyrir verkefnið List í Alviðru í Dýrafirði og Kol & salt hlaut styrk fyrir tveimur verkefnum á Ísafirði; sýningunni Valse Triste og viðburðum hjá ArtsIceland.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða er hluti af Sóknaráætlun Vestfjarða og styrkir nýsköpun, uppbyggingu atvinnulífs og menningarstarf á Vestfjörðum. Fagráð og úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs eru kosin á Fjórðungsþingi Vestfirðinga. Yfirlit yfir alla styrki úr sjóðnum má skoða hér.

DEILA