Safnahúsið: leiðsögn og spjall í listasafni Ísafjarðar á laugardaginn

Textíllistakonan Helga Pálína Brynjólfsdóttir verður með leiðsögn um sýningu sína TENGINGAR / CONNECTIONS í sal Listasafns Ísafjarðar Safnahúsinu laugardaginn 13. nóvember kl 15 og spjallar við gesti safnsins um hugmyndirnar sem liggja að baki verkanna og gerð þeirra.

Helga Pálína hefur nú um alllanga hríð gert tilraunir með að sauma í kletta, litglæða grábrún blæbrigði móbergsins en líka spýtur, nýjar og gamlar. Hún rillar og vefur, holar aftan og stingur framan, alveg ný aðferð en þó gömul, og skúlptúr stígur fram, línur, horn og sögur. 

Helga Pálína kallar með þráðum sínum fram nýjar tengingar í spýtum og steinum, hyllir náttúruna og söguna, umbreytir henni og víkkar sýn með indíánskri litadýrð og fíngerðu bróderíi.  Fortíðin og framtíðin, hið harða og hið mjúka, hið kvenlæga og hið karllæga, djúp jarðar og húrrandi nútímatækni stíga hér leikandi dans.

Helga Pálína Brynjólfsdóttir útskrifaðist úr textíldeild UIAH, Listiðnaða-háskólanum í Helsinki Finnlandi árið 1988 og hafði áður lokið B.Ed prófi frá Kennaraháskóla Íslands.  Frá árinu 1989 hefur hún kennt textílþrykk í Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, við Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík og í Textíldeild Myndlista-og handíðaskóla Íslands.

DEILA