Styrkir til að fækka sauðfé

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir nú í síðasta skipti eftir umsóknum um styrki til að fækka sauðfé.

Framleiðendur sem hyggjast hætta í sauðfjárbúskap eða fækka vetrarfóðruðum kindum um a.m.k. 100 geta sótt um aðlögunarsamning sem gildir í þrjú ár. 

Með gerð aðlögunarsamnings skuldbindur framleiðandi sig til að fækka vetrarfóðruðum kindum og í staðinn að byggja upp nýjar búgreinar, búskaparhætti eða hasla sér völl á öðrum sviðum m.a. til þess að stuðla að nýsköpun og náttúruvernd. 

Umsóknarfrestur er til 31. desember 2021. Ekki verður hægt að sækja um að þeim fresti loknum. 

DEILA