Gunnar Jónsson: Í VIÐJUM – sýningaropnun

Laugardaginn 16. október kl. 16 verður opnuð sýning á verkum Gunnars Jónssonar í Úthverfu á Ísafirði. Sýningin ber heitið ,,Í VIÐJUM‘‘ og er hluti af myndlistartvíæringnum SEQUENCES sem nú fer fram víða um land. Á menningarhátíð Ísafjarðarbæjar VETURNÓTTUM 18. – 24. október verður listamaðurinn á staðnum og spjallar um sýninguna og svarar spurningum gesta. Sýningin er opin fimmtudaga – föstudaga kl. 16-18 og eftir samkomulagi.

„Það eru 5 mínútur í. Alltaf aðeins 5 mínútur í. Allsnægtir í viðjum hringrásar, ofgnótt alls í 5 mínútna fjarlægð. Rétt ókominn, alveg að koma. Alltaf aðeins 5 mínútur í. Í ofgnóttinni fjarlægist ég. Í stað þess að verða skilvirk handbeini framkvæmda sem móttekur og afhendir jafnóðum, leggst ég undir strauminn. Beljandi straum hugmynda, ofgnótt allsnægta alls sem er og hugsast getur svo úr verður hálfgerð apatía. Doði. Ekki sinnulaus, þvert á móti. Fullur af meðvitund og ásetningi, en dofinn. Eins og í bíó. Kapphlaup nútímans teiknast upp í tákn óendanleikans og neglist niður með hverju spori og mælist í tíma og rúmi.“

Gunnar Jónsson (f. 1988) er fæddur í Reykjavík en ólst upp á Ísafirði og býr þar og starfar í dag. Gunnar lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2012 og hefur sýnt talsvert á Íslandi og erlendis síðan hann útskrifaðist. Gunnar er í stjórn sýningarsalarins Úthverfu.

                    

Sýningin er styrkt af Ísafjarðarbæ. Starfsemi Úthverfu nýtur styrkja fyrir einstök verkefni úr Myndlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Vestjfarða og frá Ísafjarðarbæ.

DEILA