Í sumar bauð Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur út sorphirðu í sveitarfélögunum, bæði fyrir heimili, stofnanir og móttökusvæði.
Unnið var út frá frumgreiningarvinnu sem verkfræðistofan Efla vann og útboðsgögn í framhaldi af þeirri vinnu unnin af Tækniþjónustu Vestfjarða.
Terra ehf (áður Gámaþjónustan) hefur um árabil þjónustað sveitarfélagið í þessum málum en nú var Kubbur hlutskarpast og tekur því við.
Formleg skipti fara fram núna um mánaðamótin ágúst – september.
Nýr verktaki mun fá tíma til að komast af stað með þjónustu og verkferla og Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur í samvinnu við nýjan verktaka koma af stað kynningarferli sem miðast að því að upplýsa íbúa um fyrirkomulag og tímasetninga á þeim breytingum sem verða.
.