Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur ákveðið að láta framkvæma greiningu og könnun á hagkvæmni sameiningar Vesturbyggðar við Tálknafjarðahrepp. Af því tilefni er boðað til rafræns íbúafundar mánudaginn 26. apríl kl. 17:30-19:00.
Á fundinum verður kynning á verkefninu og leitað eftir sjónarmiðum íbúa um hvaða atriði skipta mestu máli, ef til sameiningarviðræðna kemur.
Fundurinn verður rafrænn í Zoom-fjarfundakerfinu. Til að fylgjast með kynningum og taka þátt í umræðum þarf því að lágmarki nettengda tölvu með hátalara og hljóðnema. Æskilegt er að þátttakendur séu einnig með vefmyndavél svo aðrir fundarmenn sjái við hvern þeir eru að tala. Fundinum verður einnig streymt á facebook síðu Vesturbyggðar og upptökur af kynningu verða gerðar aðgengilegar á heimasíðu Vesturbyggðar.
Hér er slóð á fundinn á Zoom, en fundurinn opnar um kl. 17:20 þann 26. apríl.
https://us02web.zoom.us/j/89766844132?pwd=c3h1SW5XNmV5U2JiM3p3N2xIOTlqZz09