Krílið kemur í Ísafjarðarkirkju 8. mars

Tónverkið “Hver vill hugga krílið?” verður flutt í Ísafjarðarkirkju sunnudaginn 8. mars kl. 14.00. Verkið sem er fyrir barnakór, hljómsveit og sögumann er eftir Olivier Manoury og er samið við sögu Tove Jansson í þýðingu Þórarins Eldjárn.

Ævintýrið segir frá litlum dreng sem býr einn úti í skógi. Hann er mjög feiminn og þorir ekki að vingast við nokkurn fyrr en hann hittir litla stúlku sem er enn hræddari við lífið en hann. Þá finnur hann kjarkinn og sagan endar á því að þau ákveða að sigla burt á bát með fílifjonkunum. Óttinn víkur fyrir gleði og vináttu. Krílið og Stráið hugga hvort annað, nú hafa þau eignast vin!

Litríkum myndum Tove Jansson er varpað upp á meðan á flutningi verksins stendur. Verkið tekur um 40 mínútur í flutningi og er við hæfi barna á öllum aldri.

Kórarnir sem syngja eru Barnakór og Stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarðar undir stjórn Bjarneyjar Ingibjargar Gunnlaugsdóttur og Graduale Futuri undir stjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur.

Sögumaður er Egill Ólafsson.

Hljómsveitina skipa Olivier Manoury Bandoneon, Edda Erlendsdóttir píanó, Eggert Pálsson slagverk og Richard Korn kontrabassi.

Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.

Verð aðgöngumiða er 1500 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn 6-16 ára.

Posalaus miðasala við innganginn.

DEILA