Ukulele-námskeið á Hólmavík

Svavar Knútur söngvaskáld býður upp á Ukulelenámskeið fyrir börn og fullorðna á Hólmavík, vikuna 13.-17. janúar næstkomandi, sem hluti af hátíðinni Vetrarsól á Ströndum.

Á námskeiðinu, sem fer fram í gömlu flugstöðinni á Hólmavík, verður farið yfir grundvallaratriði ukuleleleiks og kennt grunngrip og spilatækni. Enn fremur læra nemendur nokkur lög til að flytja fyrir vini og vandamenn á lokatónleikum sem fara fram í Hólmavíkurkirkju laugardaginn 18 janúar.

Þá mun Svavar Knútur bjóða upp á stutt framhaldsnámskeið fyrir lengra komna, ef áhugi er fyrir því.

Tímasetningar grunnnámskeiðsins eru eftirfarandi:

13. jan kl. 17.00-19.00
15. jan kl. 17.00-19.00
17. jan kl. 17.00-19.00

Stutt námskeið fyrir lengra komna verður haldið 16. janúar kl. 17.00-19.00

Þar sem Svavar Knútur er sérstakur unnandi Strandabyggðar og vill henni allt það besta verður kostnaður við námskeiðið litlar 7.000 krónur á mann fyrir hvern kennsludag, samtals 21.000 krónur, en foreldrar fá ókeypis kennslu í fylgd með barni. Því má einnig þakka sérstökum stuðningi Sparisjóðs Strandamanna sem veitti hátíðinni vel þeginn fjárhagsstuðning sem nýttur var til að niðurgreiða námskeiðið að hluta.

Sérstaklega er mælt með því að foreldrar fylgi barni sínu og læri með því á hljóðfærið, því reynsla hefur sýnt að þannig verða framfarir mun varanlegri og lærdómurinn gengur betur. Enn fremur myndast sameiginlegt tómstundagaman sem barn og foreldri geta átt saman. Þá eru ýmis grundvallaratriði sem erfitt er að leggja á börn að kunna óháð foreldrum sínum, t.d. stilling og meðferð hljóðfæris.

Svavar Knútur getur útvegað prýðis byrjendaukulele á kostnaðarverði fyrir alla sem þess óska. Kosta þau einungis 10.000 krónur. Þeir sem eiga ukulele fyrir mega endilega heyra í Svavari Knúti, því ólíkt manneskjunum eru ekki öll ukulele sköpuð jöfn að gildi og gæðum.

DEILA