Héraðssambandið Hrafna Flóki í Vestur- Barðastrandarsýslu sendi öflugt lið á stórmót ÍR í frjálsum íþróttum sem fram fór um síðustu helgi í Reykjavík.
Alls sendi HHF 11 keppendur á mótið, þar af 3 í þrautabraut og 8 í greinum.
10 verðlaun
Sex keppendanna að vestan fengu samtals 10 verðlaun, tvö gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og sex brons verðlaun. Það er mjög góður árangur hjá Vestfirðingunum.
Tryggvi Sveinn Eyjólfsson keppti í flokki 13 ára pilta og vann fern verðlaun. Hann fékk gull í 60 metra grindarhlaupi og hljóp á 10,61 sek. Tryggvi vann þrenn brons verðlaun, í hástökki þar sem hann fór yfir 1,44 m, í 600 metra hlaupi á 1:48:90 mín og í 200 m hlaupi á 30,64 sek.
Elísa Margrét Marteinsdóttir vann brons í 800 metra hlaupi í flokki stúlkna 16-17 ára á tímanum 3:07,11 mín.
Margrét María Leiknisdóttir varð þriðja og fékk brons í kúluvarpi í flokki stúlkna 14 ára með kast upp á 8,83 metra.
Fjölnir Úlfur Ágústsson fékk gullverðlaun fyrir árangur sinn í kúluvarpi pilta 13 ára, en hann kastaði 8,91 metra.
Halldór Jökull Ólafsson vann silfurverðlaun fyrir kúluvarp með kast upp á 11,36 metra. Hann keppti í flokki pilta 18-19 ára.
Sölvi Bjarnason vann silfur í 600 metra hlaupi 11 ára pilta á tímanum 2:03,14 mín og brons í kúluvarpi 11 ára pilta með kast upp á 6,91 metra.

Keppendur voru
Vilborg Líf Eyjólfsdóttir
Tryggvi Sveinn Eyjólfsson
Halldór Jökull Ólafsson
Margrét María Leiknisdóttir
Elísa Margrét Marteinsdóttir
Óliver Logi Stepehnsen Bjartsson
Sölvi Bjarnason
Fjölnir Úlfur Ágústsson
Þrautabraut:
Ólafur Ingi Bredesen Davíðsson
Frosti Þór Ásgeirsson
Alexander Nói Ásgeirsson.