Nýlega samþykkti Alþingi umfangsmiklar breytingar á tekjuskatti einstaklinga. Ábati breytinganna skilar sér til allra tekjutíunda en sérstaklega til lág- og millitekjuhópa segir í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins. Nú um áramótin tekur gildi fyrri áfangi breytinganna þegar tekið verður upp nýtt þriggja þrepa kerfi á sama tíma og grunnþrep tekjuskattskerfisins lækkar. Síðari áfanginn tekur gildi 1. janúar, 2021 og mun fela í sér enn frekari lækkun á grunnþrepi tekjuskatts.
Þau fjárhæðamörk sem birtast í sjálfum lagabreytingunum, sem samþykktar voru á Alþingi fyrr í vetur, miða við árið 2019.
Á grundvelli þess eru skatthlutföll og fjárhæðamörk árið 2020 eftirfarandi:
2020 | ||
Prósenta í 1. þrepi: | 35,04% (þar af 14,44% útsvar) | |
Prósenta í 2. þrepi: | 37,19% (þar af 14,44% útsvar) | |
Prósenta í 3. þrepi: | 46,24% (þar af 14,44% útsvar) | |
Á ári | Á mánuði | |
Persónuafsláttur: | 655.538 kr. | 54.628 kr. |
Þrepamörk milli 1. og 2. þreps: | 4.042.995 kr. | 336.916 kr. |
Þrepamörk milli 2. og 3. þreps: | 11.350.472 kr. | 945.873 kr. |
Skatthlutfall í nýju grunnþrepi verður 35,04%, þar af 20,60% til ríkis.
Skatthlutfall í nýju miðþrepi er 37,19%, þar af 22,75% til ríkis og skatthlutfall
í 3. þrepi er áfram 46,24%, þar af 31,80% til ríkis.
Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 162.398 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 159.174 kr. á mánuði árið 2019. Hækkun skattleysismarka er því 2,0% í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs.