Leppalúði frumsýndur á Tálknafirði

Fyrir nokkru var heimsfrumsýning í Tálknafjarðarskóla á nýju leikriti Kómedíuleikhússins um Leppalúða.

Höfundur og Leikari er Elfar Logi Hannesson. Búningur er í umsjón Öldu S. Sigurðardóttur
Tæknilegar lausnir og galdrar eru í höndum Kristjáns Gunnarssonar.
Leikmynd/Gríma/Leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir.
Uppbyggingasjóður Vestfjarða & Ísafjarðarbær styrkja Kómedíuleikhúsið.

í kynningu á leikritinu segir um efnið:

Loksins eftir að hafa staðið í skugganum af konu sinni Grýlu í árhundruð fær Leppalúði sviðsljósið.
Hver er hann eiginlega? Talar hann mannamál ? Er hann í alvörunni til ?

Aðsókn var góð og nemendur og fleiri gestir skemmtu sér konunglega, hlóu og tóku þátt í sýningunni með Leppalúða.

 

DEILA