Amma mín fór á honum Rauð

Mynd: eidfaxi.is

Hagyrðingar hafa að undanförnu skemmt sér við að yrkja upp gamlar og klassískar vísur.  Þar hafa orðið til margar skemmtilegar útgáfur.

Indriði á Skjaldfönn sló í gegn með þessari um afrekskonuna Ömmu:

 

 

 

Amma mín fór á honum Rauð
er afi kvaddi sviðið,
að ýta þessum ógnarsauð
inn fyrir Gullna hliðið.

 

DEILA