Gísli Súrsson – teiknimyndasaga

Laugardaginn 30. mars var opnuð sýning í sal Listasafns Ísafjarðar í Safnahúsinu um Gísla sögu Súrsson.

Elfar Logi Hannesson og Ómar Smári Kristinsson eru að gera teiknimyndasögu sem þeir vinna upp úr Gísla sögu Súrssonar, þar sem Elfar Logi skrifar og Ómar Smári teiknar.

Í kynningu Safnahússins á sýningunni segir að þeirra eigin sögn, „þá vinnst verkið seint vegna þess að báðir listamennirnir sem að því standa hafa verið uppgötvaðir – bara ekki sem myndasögugerðarmenn. Það er semsagt meira en nóg að gera í listinni. Það er því meira en tímabært að leyfa fólki að sjá hvað þeir félagar hafa náð að gera til þessa.“

Þeir félagar ætla að segja hina miklu Gísla sögu í tveimur teiknuðum bókum og er helmingur fyrri bókarinnar  sem er í vinnslu sýndur, frá fyrstu skissum til teikninganna sem verða í bókinni. Áætlað er að í fyllingu tímans munu bækurnar koma út á mörgum tungumálum og fara sigurför um heiminn. Bernhild Vögel er þegar byrjuð að þýða verkið yfir á þýsku.

Sýningin stendur uppi 30. mars – 27. apríl og verður opin á opnunartímum hússins, virka daga kl. 12-18 og  laugardaga kl. 13-16.

Myndir: Nina Ivanova.

DEILA