Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson og Lenka Ptacnikova urðu í gær Norðurlandameistarar í skák. Þau verða bæði á Skákhátíð Hróksins í Árneshreppi sem verður um næstu helgi. Þetta er í annað sinn sem Jóhann vinnur Norðurlandameistaramótið en ólíkt flestum keppinautum sínum er hann ekki atvinnumaður í skák. Lenka Ptácníková hefur átt góðu gengi að fagna en í fyrra varð hún Íslandsmeistari kvenna í áttunda skipti og í fimmta skipti í röð. Hún vann titilinn Norðurlandameistari kvenna í skák 2005 og 2007.

Skákhátíð Hróksins hefst með tvískákarmóti og brennu í Trékyllisvík föstudagskvöldið 7. júlí kl. 20. Í tvískák eru tveir saman í liði, og iðulega afar heitt í kolunum.
Hápunktur hátíðarinnar verður laugardaginn 8. júlí í félagsheimilinu, minninningarmót Jóhönnu Kristjónsdóttur 2017. Jóhanna, sem lést 11. maí síðastliðinn, var meðal ötulustu liðsmanna Hróksins og hafði jafnframt sterk tengsl við Árneshrepp. Yfirskrift hátíðarinnar er sótt í kjörorð Jóhönnu: Til lífs og til gleði.
Minningarmótið hefst klukkan 14 og verða tefldar 8 umferðir, með 10 mínútna umhugsunartíma. Verðlaun á mótinu eru í senn vegleg og óvenjuleg, m.a. listaverk sem Guðjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi vinna sérstaklega af þessu tilefni.
Hátíðinni lýkur með hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði sunnudaginn 9. júlí kl. 12. Þar verða tefldar 5 mínútna skákir, 7 umferðir, og sigurvegarinn hlýtur nafnbótina Norðurfjarðarmeistarinn 2017.