Iceland dýrasta verslunin – Fjarðarkaup hækkar minnst milli ára

Iceland var með hæst verðlag og var oftast með hæsta verðið í matvörukönnun verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var 6. og 7. september.

Verð þar hækkaði einnig mest milli ára, en sömu vörur og verslanir voru kannaðar 17. október í fyrra. Fjarðarkaup hækkaði verð minnst milli kannana.

Bónus var bæði með lægsta verðlagið og oftast með lægsta vöruverðið. 

Átta verslanir voru kannaðar; Bónus, Krónan, Nettó, Fjarðarkaup, Heimkaup, Kjörbúðin, Hagkaup og Iceland. 

Fjarðarkaup hefur fært sig í hóp verslana með lægra vöruverð, eftir aðhald í verðhækkunum undanfarið ár. Verðlagseftirlitið metur verðlag með því að athuga hversu mikið dýrari vörur eru í verslun en þar sem þær eru ódýrastar. Á þeim mælikvarða voru vörur í Fjarðarkaupum áður að jafnaði 13% dýrari en þar sem þær voru ódýrastar. Munurinn er  nú undir 8%. Til samanburðar er Bónus lægst, að jafnaði 2% hærri en lægsta verð, en Iceland með langhæsta verðlagið, að meðaltali 35% hærra verð en það ódýrasta. 

Heimkaup hefur líka haldið aftur af verðhækkunum og er nú ekki lengur dýrasta verslunin. Heimkaup færast um þrjú sæti fyrir vikið. 

Iceland, á hinn bóginn, á met í verðhækkunum frá október í fyrra, og er nú orðin langdýrasta verslunin af þeim átta sem hér eru bornar saman. Þar er verð nú hæst í langflestum fjölda tilfella og aldrei lægst af þeim vörum sem til skoðunar voru.

Nánar um könnunina á vefsíðu ASÍ

DEILA