Nordplus Junior-heimsókn í Grunnskólann á Þingeyri

Hópurinn við Dynjanda, séð út Arnarfjörðinn. Mynd: Grunnskólinn á Þingeyri.

Nemendur í 6.-8. bekk við Grunnskólann á Þingeyri hafa tekið þátt í Nordplus Junior-verkefni undanfarin tvö ár, samvinnuverkefni Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, og í lok apríl komu 38 gestir frá Kasseboella Freeschool í Danmörku og Kohtla-Jarve Maleca Basic School í Eistlandi til Þingeyrar en við það tvöfaldaðist nemenda- og kennarafjöldi skólans á Þingeyri.

Þema verkefnisins er víkingar og markmiðin eru m.a. að uppgötva ný tækifæri og hæfni í samskiptum, kynnast margbreytileikanum, umgangast allskonar manneskjur og læra að skilja hvert annað. Markmiðið er líka að kennarar tengist og læri hver af öðrum. 

Nemendur unnu að ýmsum verkefnum og sóttu viðburði á meðan á heimsókninni stóð, meðal annars var víkingasmiðja í Stefánsbúð, farið í heimsókn í gömlu smiðjuna og á leiksýningu um Gísla Súrson í Haukadal.

Einnig var farið í fjallgöngu, á hestbak, í íþróttahúsið og sund og að lokum í hópferð að Dynjanda með heitt kakó, kleinur og harðfisk.

Sýning um Gísla Súrson í Komedíuleikhúsinu í Haukadal
Hópurinn við Dynjanda
DEILA