Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir heilsugæslustöð til sölu

Bolungarvíkurkaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðilum um kaup á fasteigninni að Höfðastíg 15 í Bolungarvík. 

Í húsnæðinu er fyrir starfsemi heilsugæslu sem rekin er af Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og fylgir langtíma leigusamningur um þá starfsemi með húsnæðinu.

Þar var áður tannlæknastofa, apótek og lítil íbúð. Húsið er um 360 fm.

Auglýst er eftir áhugasömum aðilum sem eru tilbúnir að byggja upp heilbrigðistengda starfsemi í húsinu sem samræmist þeirri starfsemi fyrir er.

DEILA