Hafís nær landi en verið hefur

Um klukkan átta í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar ratsjármynd af Vestfjörðum og stöðu haffís á svæðinu.

Á myndinni má sjá að ísinn er vel frá landi eða 37 sjómílur NNV af Straumnesi og 83 sjómílur vestur af Bjargtöngum.

Myndin barst frá Siglingaöryggisstofnun Evrópu og var tekin af RADARSAT-2 gervitunglinu.

Á mynd sem barst á föstudag mátti svo sjá ísspöng sem var um 16 sjómílur frá landi.

DEILA